Keilir með kollhúfu
Sýning á myndum af Keili verður opnuð á Bókasafni Reykjanesbæjar nk. laugardag, 3. febrúar kl. 14. Sýningin er samvinnuverkefni Valgerðar Guðmundsdóttur menningarfulltrúa, Bókasafns Reykjanesbæjar og Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
„Sjö listamenn og einn áhugaljósmyndari verða með sýningu á verkum sínum, þ.e. Ásta Árnadóttir, Ásta Pálsdóttir, Eiríkur Árni, Íris Jónsdóttir og Sossa sem öll sýna málverk af Keili. Stefán Geir Karlsson mun sýna líkan af hugmynd sinni, sem er að setja húfu á Keili sumarið 2002“, segir Valgerður.
Auk áður nefndra málara mun Úlfur K. Grönvold sýnir myndband af fjallinu og Hjálmar Árnason sýnir 30 ljósmyndir af Keili í ýmsum búningum. Hjálmar ekur Reykjanesbrautina á hverjum degi og hefur tekið umm 100 ljósmyndir af Keili sem sýna margbreytilega árstíðanna. Úrval þeirra mynda verður á sýningunni og verða þær seldar til fjáröflunar fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum.
Sýningin verður opin í mánuð á opnunartímum bókasafnins.