Mannlíf

Keflavíkurkirkja í kvöld: Friðrik Ómar og Jógvan
Miðvikudagur 15. júní 2011 kl. 13:16

Keflavíkurkirkja í kvöld: Friðrik Ómar og Jógvan

Þeir félagar Friðrik Ómar og Jógvan Hansen eru á fleygiferð um landið vítt og breitt sumarið 2011. Þeir spila í Keflavíkurkirkju í kvöld, miðvikudaginn 15. júní kl. 20:00. Plata þeirra félaga, Vinalög, sló í gegn og var mest selda plata ársins 2009.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Núna eru þeir komnir saman aftur og ætla að flytja lög af plötunni auk ýmissa laga sem eru í uppáhaldi hjá þeim. Frábær kvöldstund sem þú mátt ekki missa af. Húsið opnar hálftíma fyrir tónleika. Miðaverð 2000.-

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100