Keflavíkurannállinn kominn í leitirnar og loks til birtingar
Eftir langa bið, mjög langar samningaviðræður og óskir um birtingaleyfi er Keflavíkurannállinn komin á netið eftir að hafa verið aðeins örfáum útvöldum eðal Keflvíkingum aðgengilegur. Keflvíkingar fóru mikinn að venju við gerð annáls 2015 en hann var sýndur á Þorrablóti Keflavíkur um miðjan janúar síðastliðinn. Eftir nærri tveggja mánaðar bið er annállinn loks kominn til birtingar. Sumir segja hann ekki birtingarhæfan.
Hér skal ekki lagður dómur á hvernig köppunum sem eru í upphafsatriði þáttarins, gekk að koma þessu saman. Það er áhorfenda að dæma. Sumir fá það óþvegið, sumir aðeins þvegið, aðrir minna og sumir ekkert. En hvað eru þeir þá?
Gjörið svo vel!