Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Kaupþing banki Reykjanesbæ veitir ungu íþróttafólki afreksstyrki
Miðvikudagur 12. desember 2007 kl. 11:14

Kaupþing banki Reykjanesbæ veitir ungu íþróttafólki afreksstyrki

Kaupþing Reykjanesbæ veitti nú á dögunum þrjá 100.000 króna afreksstyrki til ungs íþróttafólks. Tuttugu og fimm tilnefningar bárust frá sex íþróttafélögum. Fyrir valinu urðu eftirtalin ungmenni:

-Erla Dögg Harldsdóttir, sundkona úr Njarðvík hefur unnið 8 Íslandsmeistaratitla og sett 10 Íslandsmet á árinu og er nú í 16. sæti á afrekaskrá Evrópu. Hún vann til tveggja gull og einna silfurverðlauna á Smáþjóðaleikunum og nú í síðustu viku bætti hún 15 ára gamalt Íslandsmet Ragnheiðar Runólfsdóttur í 50m bringusundi.

-Helgi Rafn Guðmundsson æfir í Taekwondo deild Keflavíkur. Hann er í landsliðinu og vann til silfurverðlauna á Norðurlandamótinu á þessu ári en áður hafði hann tvívegis unnið til verðlauna á Norðurlandamóti. Á Scandinavian Open mótinu nú í nóvember var hann valinn keppandi mótsins úr riflega 300 keppendum.

-María Jónsdóttir er 14 ára og spilar körfubolta með Keflavík. Hún hefur verið Íslandsmeistari með liði sínu s.l. 5 ár og í vor var hún valin í 16 ára landslið stúlkna, yngst keppenda. María hefur verið valin besti og mikilvægasti leikmaðurinn á uppskeruhátíðum Keflavíkur.



.



Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024