Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Kasta sögum í gegnum netið
Sunnudagur 11. nóvember 2012 kl. 10:30

Kasta sögum í gegnum netið

Rithöfundarnir Hildur Enóla og Sirrý Sig. voru að senda frá sér sína fyrstu sameiginlegu rafbók sem ber heitið Eitt leiðir af öðru. Þær stöllur kynntust í gegnum Rithringinn og hafa verið að skrifa saman síðan árið 2009.

Sirrý Sig. rithöfundur lauk prófi í grafískri miðlun frá Tækniskólanum árið 2008 og nýtir sér það nám við hönnun og frágang á skrifunum. Sirrý Sig. vinnur hjá N1 og er alltaf á fullu en tekst samt að finna tíma til að sinna stórfjölskyldunni og skrifunum. Hún býr í Reykjanesbæ og hélt utan um skapandi skrif hóp í Virkjun árin 2009 og 2010. Þá skrifaði Sirrý Sig. barna- og unglingabókina ,,Gegnum rifurnar” sem Tindur bókaútgáfa gaf út árið 2007. Þetta sama ár vann hún þriðju verðlaun í tímaritinu Nýju lífi fyrir smásögu sína. Auk þessa hafa verið birtar eftir hana nokkrar smásögur. Smásögurnar hennar spanna breitt svið, allt frá hröðum spennu-, glæpa- og gamansögum yfir í hægari gír fantasíu og drama. Sirrý Sig. á fullt af hálfkláruðu efni því hugmyndaflugið fer langt upp fyrir skriftarhraðann ef svo má að orði komast, en hjá útgefanda eru handrit að tveimur barnasögum sem bíða svars.

Hildur Enóla rithöfundur er sjúkraliði að mennt og starfar og skrifar í Danmörku. En hún fluttist þangað árið 2010. Fantasíur eru ofarlega á lista Hildar Enólu þegar kemur að skrifum en hún hefur líka sýnt og sannað að hæfileikar hennar liggja líka í gerð smásagna. Hildur Enóla vann fyrstu verðlaun í ástarsagnakeppni tímaritsins Vikunnar í byrjun ágúst þessa árs. Að baki liggur ein útgefin bók í litlu upplagi um, ,,Gneistan Gráfeld.” Í skúffunni er nánast fullbúið handrit að ,,young adult”  fantasíu um lífshlaup geimveru sem hún er búin að dútla að í 6 ár.

Hildur Enóla og Sirrý Sig. kynntust í gegnum rithringinn, www.rithringur.is ásamt fullt af öðrum frambærilegum höfundum sem gagnrýna hver fyrir annan og hafa sumir unnið mikið saman. Það var ekki fyrr en árið 2009 sem Hildur Enóla og Sirrý Sig. prufuðu að skrifa saman sem varð eins konar áskorun sem lýsir sér fyrst og fremst í fjölbreyttum stíl, frásagnargerð, söguþræði og markhópi. Þær hafa grætt heilmikið á þessari samvinnu að þeirra sögn. Hildur Enóla er meira í fantasíum og lýsingum en Sirrý Sig. drífur sögurnar áfram og jarðbindur þær, þannig að úr verða, að þeirra mati, þéttar og góðar sögur. Þær hafa bara einu sinni sest niður saman og skrifað en annars vinna þær allt í gegnum netið og kasta sögunum þar á milli sín. Bókina Eitt leiðir af öðru má finna á www.emma.is og í enskri útgáfu á www.amazon.com.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024