Karnival um næstu helgi
Árleg vorhátíð varnarliðsins verður haldin á Keflavíkurflugvelli næstkomandi laugardag, 15. maí.
Hátíðin er með "karnival"-sniði og fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins og stendur frá klukkan ellefu að morgni til þrjú síðdegis. Í boði verður fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna - lifandi tónlist, þrautir, leikir, matur og hressing og sýningar af ýmsu tagi. Þotur, þyrlur og annar búnaður varnarliðsins verður til sýnis á svæðinu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda.