Karnival-stemmning og American Pie á opnum degi
Opni dagurinn á Ásbrú verður haldinn hátíðlegur á sumardaginn fyrsta, sem er á fimmtudaginn í næstu viku. Eins og undanfarin ár verður dagurinn með yfirbragði karnivals en svoleiðis hátíðir voru mjög vinsælar þegar varnarliðið réð ríkjum þar sem nú er Ásbrú.
Nú er dagskrá opna dagsins að taka á sig endanlega mynd en undanfarnar vikur hafa þau Diljá Ámundadóttir og Unnsteinn Jóhannsson, sem eru verkefnastjórar opna dagsins, unnið að því að setja saman dagskránna og fá skemmtikrafta og annað fólk sem þarf til að skapa góða karnival-stemmningu. Víkurfréttir tóku hús á Unnsteini nú í vikunni sem sagði okkur frá ýmsu sem verður á dagskránni á Ásbrú næsta fimmtudag, á sumardaginn fyrsta.
Dagskrá opna dagsins verður með svipuðu sniði og í fyrra en þá heppnaðist dagurinn einstaklega vel og þúsundir lögðu leið sína á Ásbrú til að njóta skemmtunar í kvikmyndaverinu Atlantic Studios eða til að kynna sér nám í Keili. Í ár er ætlunin að skerpa enn frekar á karnival-stemmningunni og skapa upplifun eins og í alvöru amerískri sveitaferð.
Eins og í fyrra verður alvöru draugahús og leikir ýmiskonar. Fornbílaklúbburinn hefur boðað komu sína og þyrla Landhelgisgæslunnar ætlar einnig að heiðra gesti með nærveru sinni. Þá verður Norðurflug einnig á staðnum og ætlar að bjóða upp á útsýnisflug með þyrlu gegn gjaldi ef aðstæður leyfa.
Í Atlantic Studios verða margir básar og ýmiskonar kynningar. Íþróttafélögin í Reykjanesbæ verða með ýmislegt í boði og á staðnum verður hægt að fá veitingar, m.a. á ameríska vísu. Þá verður söngur og fjör þar sem Ingó veðurguð og Ávaxtakarfan koma m.a. við sögu.
Bandaríska sendiráðið á Íslandi ætlar að taka virkan þátt í hátíðarhöldunum og mun í samstarfi við opna daginn á Ásbrú vera með „American Pie“-keppni þar sem almenningi gefst kostur á að keppa í bakstri á amerískum bökum. Keppt verður í þremur flokkum, þ.e. eplaböku, berjaböku og svo með frjálsri aðferð. Bandaríski sendiherrann verður í dómnefnd og veitt verða verðlaun sem nýlega hafa verið keypt í Ameríku og eru eftirsóknarverð. Einnig verður veitingastaða-keppni í því hver gerir besta Chili con Carne. Það er sá réttur sem hvað mest á heima á karnivali sem þessu og enginn maður með mönnum nema hann fái sér gott Chili con Carne. Sendiherrann verður einnig í þeirri dómnefnd, enda mikill áhugamaður um réttinn og veit sínu viti um Chili.
Skráning er hafin í keppnirnar og hægt að skrá sig á [email protected] og nánari upplýsingar má nálgast þar eða í síma 662 2204.
Skorað er á almenning og veitingamenn á Suðurnesjum að halda heiðri Suðurnesja uppi og skrá sig til leiks og keppa um hver gerir besta pie-ið og Chili con Carne á Íslandi.
Dagskráin verður ekki bara í Atlantic Studios því í Keili verður kynning á námi og þar mun tónlistarmaðurinn Snorri Helgason spila. Í Sporthúsinu verða kynningar í tilefni dagsins og opnir tímar. Þar verða einnig kynningar á fæðubótarefnum. Í Eldey verður opið hús þar sem fyrirtækin þar kynna sína starfsemi og Heklan kynnir sitt starf.
Auk fornbíla á útisvæði þá verða einnig tæki frá lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitum. Til dæmis verður stærsti slökkvibíll landsins á staðnum og þá má búast við mótorhjólum af öllum stærðum og gerðum.
Suðurnesjamenn ættu ekki að láta karnival-stemmninguna á sumardaginn fyrsta á Ásbrú fram hjá sér fara en hátíðarhöldin standa yfir frá kl. 13-16 fimmtudaginn 25. apríl nk. Hátíðin verður nánar auglýst í Víkurfréttum í næstu viku.