Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Mannlíf

Miðvikudagur 22. maí 2002 kl. 13:16

„Karnival“ í boði varnarliðsins

Varnarliðsmenn munu bjóða til árlegrar vorhátíðar á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 25. maí. Hátíðin er með "karnival" sniði og fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins frá klukkan ellefu að morgni til fjögur síðdegis. Fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna verður í boði, lifandi tónlist, þrautir, leikir, matur og hressing og sýningar af ýmsu tagi og svo mun björgunarþyrla og annar búnaður varnarliðsins vera til sýnis á svæðinu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur og eru gestir vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda.
Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25