Karlmennirnir halda fast í hefðirnar
Jónína Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum býr með fjórum karlmönnum og þeir halda fast í jólahefðirnar. Hún er að vinna í smá breytingu fyrir næsta ár hvað það varðar.
Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Engin mynd bara jólalög.
Sendir þú jólakort eða hefur facebook tekið yfir?
Sendi venjulega jólakort eða jólafréttabréf en hef ákveðið að senda ekki jólakort í ár og styrkja góð málefni í staðinn.
Ertu vanafastur/föst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?
Sjálf er ég ekki svo vanaföst og alveg tilbúin í breytingar, en ég bý með 4 karlmönnum sem halda fast í hefðir og ég er sátt við það. Annars eru hefðirnar flestar tengdar samveru með fjölskyldu og vinum. Til dæmis fer fjölskylda eiginmannsins alltaf í íþróttahúsið í Garðinum þar sem ekkert er gefið eftir í badmintonkeppni. Það er klikkað keppnisskap í þessari fjölskyldu. Hér er ekki í boði að leyfa litlu börnunum að vinna.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Miðjudrengurinn sem kom rétt eftir jólin 2003 en átti að fæðast miðjan janúar 2004.
Eitthvað sérstaklega eftirminnilegt frá jólum þegar þú varst yngri?
Þegar ég og systir mín fengum risastórar dúkkur og barbie dúkkur frá mömmu og pabba, gleymi ekki gleðinni hjá litlu stelpunni þann aðfangadaginn.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Svínahamborgarhryggur og meðlæti eins og mamma gerði hann. Annars var ég með sérþarfir í fyrra og gerði lambalundir og kanilkartöflur.
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Fyrsta í aðventu.
Hefur þú verið eða gætir þú verið hugsað þér að vera erlendis um jólin?
Já ég er að reyna að sannfæra fastheldnu karlmennina í mínu lífi til að vera á Flórida næstu jól og áramót, sjáum hvernig það gengur.
Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn?
Ég geymdi það hjá mér svo jólasveinninn hélt áfram að vitja mín langt fram eftir aldri.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Stóri jólasveininn sem mamma prjónaði og svo ylja hvít jólaljós mér mikið í skammdeginu.