Mannlíf

Karlakórinn rokkar! - sjáið myndskeið frá æfingu
Þriðjudagur 7. maí 2019 kl. 07:00

Karlakórinn rokkar! - sjáið myndskeið frá æfingu

Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur 2019 í Hljómahöll - Stapinn 14. og 15. maí 2019

Það stefnir í bráðskemmtilega vortónleika hjá Karlakór Keflavíkur þann 14. og 15. maí 2019 því kórinn hefur fengið sjálft rokkgoðið Eyþór Inga Gunnlaugsson til liðs við sig og mun hann taka nokkur vel valin lög með kórnum undir stjórn Jóhanns Smára Sævarssonar.
 
Kórinn mun flytja klassísk karlakóralög fyrir hlé og hafa síðan léttleikann ráðandi eftir hlé þar sem flutt verða nokkur gömul og ný popplög og endar svo á hressilegu rokki með aðstoð Eyþórs.
 
Flutt verða lög sem voru gerð vinsæl af eða eru eftir Richard Wagner, Árna Thorsteinsson, Áskel Jónsson, Sigurð Sævarsson, Pál Ísólfsson, Gunnar Þórðarson, Braga Valdimar Skúlason, Mugison, Hjálma, Ásgeir Trausta, Rúnar Júlíusson, Leonard Coen, Queen o.fl.
 
Meðal laga sem flutt verða eru: Brimlending, Rósin, Ár vas alda, Líttu sérhvert sólarlag, Hallellújah, Nína, Dýrð í dauðaþögn, Orðin mín, Don't Stop Me Now, Bohemian Rhapsody o.fl.
 
Fram koma:
Karlakór Keflavíkur með Eyþóri Inga Gunnlaugssyni  
Stjórnandi: Jóhann Smári Sævarsson
Píanó: Arnór Vilbergsson
Hljómsveitin „The Band With No Name“: 
Arnór Vilbergsson píanó / hljómborð, Halldór Lárusson trommur, Sigurgeir Sigmundsson gítar, Þorgils Björgvinsson bassi  
Einsöngur: Kristján Þ. Guðjónsson.
Húsið opnar kl.19:30
Tónleikar hefjast kl 20:30
Miðasala á www.tix.is
 
Sjónvarp Víkurfrétta kíkti á æfingu hjá karlakórnum og ræddi við Jón G. Gunnarsson formann kórsins og Jóhann Smára Sævarsson kórstjóra. Innslagið má sjá hér að neðan.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024