Karlakórinn Heimir með tónleika á föstudaginn í Grindavík

Stjórnandi er Stefán R. Gíslason, sem einnig þenur nikkuna, en aðalundirleikari Thomas R Higgerson, píanó.
Kórinn var stofnaður í desember 1927 og á því áttræðisafmæli á þessu ári. Karlakórinn Heimir heldur úti heimasíðunni http://www.heimir.is og þar er jafnan að finna upplýsingar um starfsemina og það sem framundan er á hverjum tíma.
Á laugardagskvöldið skemmtir kórinn á svo Broadway í Reykjavík.