Karaoke græjan þótti mikið sport
Hafdís Ásta Guðmundsdóttir, snyrtifræðingur er búsett í Garðinum ásamt fjölskyldu sinni, en þar er hún fædd og uppalin. Henni finnst jólin koma með Baggalúts-tónleikum ár hvert en er að öðru leyti ekki vanaföst yfir hátíðarnar.
Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið?
Það koma náttúrulega ekki jól nema maður horfi á the Holiday.
Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir?
Við sendum jólakort fyrstu tvö jólin eftir að eldri strákurinn okkar fæddist en svo er ég því miður sek um að hafa ekki nennt ekki að standa í þessum jólakortum síðustu tvö ár og frekar skellt í eina jólakveðju á Facebook. Stefni samt á að senda jólakort á næsta ári.. ef ég nenni.
Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?
Nei er alls ekki vanaföst um jólin. Eina sem mér dettur í hug er að við systkinin höfum alltaf opnað pakkana frá hvort öðru fyrir matinn á aðfangadag en annars er ég bara nokkuð slök með allt annað.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Hef fengið alveg ótrúlega margar fallegar gjafir en eftirminnilegasta jólagjöfin er líklega karaoke græjan sem ég fékk frá mömmu og pabba þegar ég var yngri. Get ekki sungið fyrir fimmaur og er líklega falskari en flestir á Íslandi en þetta var svaka sport og var mikið notað, ætli mamma og pabbi hafi ekki fljótlega séð eftir þessari gjöf.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum?
Eitt sem ég man vel eftir er þegar afi Pétur datt á aðfangadagskvöld niður þessar heilu tvær tröppur sem liggja niður í stofu heima hjá foreldrum mínum og lenti ofan á Knúti bróður sem þá var tveggja ára og sat í sínu mesta sakleysi á nýju snjóþotunni sinni. Þeir meiddust nú hvorugir sem betur fer en gamli var eðlilega alveg miður sín yfir þessu, greyið.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Hamborgarhryggur, brúnaðar kartöflur og meðlæti. Svo er alltaf Toblerone ís í eftirrétt.
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Mér finnst jólin ekki vera komin nema ég fari á Baggalúts-tónleika.
Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin?
Við vorum úti á Tenerife síðustu jól og áramót, ég ásamt einum bumbubúa, Danni kærastinn minn, strákurinn okkar Eyþór, mamma, pabbi, Sveinlaug systir, Davíð mágur minn og börnin þeirra Hafþór og Elísabet. Svo hitti svo skemmtilega á að tengdaforeldrar mínir voru líka úti á Tene á sama tíma. Okkur fannst rosa notalegt að vera úti um jólin og myndum alveg pottþétt vilja gera það aftur. Allt öðruvísi jól auðvitað en skemmtilegt samt að upplifa svona öðruvísi jól einu sinni.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Já, ég á tvö uppáhalds jólaskraut sem strákurinn minn föndraði í leikskólanum.
Hvernig verð þú jóladegi?
Ég fer með fjölskyldunni minni í jólaboð bæði til mömmu og pabba og svo til tengdó seinna um daginn. Svo höfum við það bara kósý saman um kvöldið.