Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Karamellurigning á Barnahátíð Reykjanesbæjar
Mánudagur 13. maí 2013 kl. 10:21

Karamellurigning á Barnahátíð Reykjanesbæjar

Um sjö þúsund manns sóttu dagskrá Barnahátíðar um helgina.

Þrátt fyrir frekar blauta veðurspá var karamelluregn á Keflavíkurtúni eina rigningin sem lét sjá sig á líflegri Barnahátíð í Reykjanesbæ sem haldin var um helgina. Þeirri rigningu var stýrt af Brunavörnum Suðurnesja sem dreifðu karamellum úr körfubíl yfir barnahópinn sem tók rigningunni opnum örmum í bókstaflegri merkingu.

Múgur og margmenni heilsaði upp á Skessuna sem bauð upp á lummur í glampandi sólskininu í tilefni hátíðarinnar og svitinn hreinlega bogaði af Fjólu tröllastelpu, vinkonu Skessunnar, sem komin var beint af fjalli vafin sauðagærum eftir langan vetur til að gefa börnunum blöðrur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á fimmta þúsund gesta heimsóttu Víkingaheima á laugardaginn, þar sem margt var til skemmtunar svo sem opnun Landnámsdýragarðsins, leikfangamarkaður barnanna, sirkussýning, Víkingar og margt fleira. Á annað þúsund gesta lögðu leið sína í Duushús til að skoða sýningu leikskólanna og Listasafns Reykjanesbæjar, Umhverfi okkar er ævintýri, og fjöldi barna sótti smiðjur, lék sér í tívolítækjum eða öðru því sem hátíðin bauð upp á, öllum að kostnaðarlausu.

Mikil ánægja er meðal aðstandenda hátíðarinnar yfir því hvernig til tókst en Barnahátíðin er liður í þeirri viðleitni Reykjanesbæjar að stuðla að fjölskylduvænu samfélagi. Dagskráin byggðist upp á þeim tækifærum sem eru til staðar í bænum fyrir börn og fjölskyldur svo sem Landnámsdýragarðinum, Víkingaheimum, Duushúsum, Innileikjagarðinum og Vatnaveröld, auk viðburða sem boðið var upp sérstaklega í tilefni hátíðarinnar. Andrúmsloftið var afslappað, fjölskyldur nutu dagskrárinnar saman og ekki skemmdi fyrir að veðrið lék við gesti og gangandi.

Hér má sjá fleiri myndir sem Guðrún Þorsteinsdóttir tók.

Fleiri myndir frá barnahátíð eru væntanlegar á vf.is.

-