Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Þriðjudagur 2. desember 2003 kl. 09:05

Kammersveit Reykjavíkur í Ytri-Njarðvíkurkirkju

Tónlistarfélag Reykjanesbæjar hefur nú verið endurvakið og verða fyrstu tónleikar á vegum félagsins í Ytri-Njarðvíkurkirkju, fimmtudaginn 4. desember kl. 2:00 þar sem Kammersveit Reykjavíkur mun leika fyrir Suðurnesjamenn.
Allt frá fyrsta vetri sínum hefur Kammersveitin haldið jólatónleika í desembermánuði þar sem leikin hefur verið tónlist frá barrokktímanum og að þessu sinni verða tónleikarnir í Reykjanesbæ. Þessir tónleikar hafa líklega verið vinsælustu verkefni Kammersveitarinnar. Að þessu sinni ætlar Rut Ingólfsdóttir, sem frá upphafi hefur verið í forsvari bæði sem fiðluleikari og sem formaður Kammersveitarinnar, að leika uppáhaldskonsertana sína, fjóra fiðlukonserta eftir Bach. Með henni leika einleik þau Daði Kolbeinsson á óbó og Unnur María Ingólfsdóttir, fiðluleikari, en þær systurnar hafa margoft leikið þennan konsert saman bæði hér á landi og erlendis.
Tónleikarnir eru haldnir með styrk frá Reykjanesbæ og hefjast kl. 20.00. Aðgangseyrir er kr. 1.500 en ókeypis fyrir nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024