Kallast þetta vinir?
Vinir fólks eru misjafnir, eins og þeir eru margir. Hér hefur einhver vinahópur verið á ferð á Keflavíkurflugvelli við höfuðstöðvar Suðurflugs í gærkvöldi. Búið var að pakka inn þessari bifreið í plast, þannig að eigandi hennar hefur þurft að leggja í talsverða vinnu við að taka útan af bíl sínum áður en haldið var út í umferðinna. Bíleigandinn hefur örugglega hugsað: „Kallast þetta vinir manns?“...