Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Miðvikudagur 5. desember 2001 kl. 10:06

Kaldar kinnar og heit hjörtu

Rjóðar kinnar, húfur, treflar og snjógallar. Veitti ekki af í kuldanum sem var á mánudaginn þegar kveikt var á jólatrénu í Sandgerði. Bæjarbúar létu það þó ekki á sig fá, klæddu sig vel og mættu með góða skapið. Barnakórinn söng ásamt kirkjukórnum nokkur jólalög við harmónikkuundirleik. Jólatréð stendur við grunnskólann og sómir sér þar vel, ljósum skreytt.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024