Kaffihúsakvöld í Eldey í kvöld
Í kvöld, fimmtudagskvöldið 13. september, ætla frumkvöðlar og hönnuðir í Eldey á Ásbrú að bjóða til Kaffihúsakvölds frá kl. 20-22.
Kl. 20.15 mun Brynja Aðalbergsdóttir leikskólastjóri segja frá mastersverkefni sínu „Viltu biðja jólasveininn um að gefa mér íslenskt nammi í skóinn?“ en þar segir af „Kanamenningu“ í Keflavík og samfélagslegum áhrifum af setu varnarliðsins á Miðnesheiði á menningu og daglegt líf.
Frumkvöðlar og hönnuðir sýna verk sín og eru vinnustofur opnar að fyrirlestri loknum.
	Kaffi og heimabakað á staðnum gegn frjálsu framlagi.
	 

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				