Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fimmtudagur 25. febrúar 1999 kl. 17:44

JÖRUNDUR KRISTINSSON LÆKNIR Í GRINDAVÍK SKRIFAR: AÐ „KRUKKA" Í SANNLEIKANN

Í Framsóknarfréttum 1.tölublaði 1999 er m.a. að líta grein undir heitinu: „Hvers vegna sprakk meirihlutinn”, þar er m.a. fjallað um læknamál. Þar eru menn alls óragir við að „krukka“ í sannleikann og minnir þetta á heldur illa lukkaða lýtalækningaaðgerð. Örin eru þeim sem til þekkja vel sýnileg. Markmiðið virðist vera af hálfu framsóknarmanna hér í bæ að þvo hendur sínar af því klúðri sem þeir eru alfarið höfundar að sjálfir varðandi búsetumál læknis staðarins. Haustar snemma hjá sumum Þar segir m.a. eftirfarandi: „Í haust þegar við vorum að ganga frá samningum við Jón Gunnar vegna Víkurbrautar 40 kom annar bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna á fund með bréf frá lækninum... o.s.frv“. Tímaskyn virðist ekki vera hin sterka hlið þess er greinina ritar því hið rétta er að umtalað bréf færði ég Jóni Hólmgeirssyni þann 7. júlí 1998 og vonaðist til að það yrði tekið fyrir á bæjarráðsfundi sem var einum eða tveimur dögum síðar. Það gekk ekki eins og að neðan greinir. Það haustar því snemma hjá sumum!! Hjá mér er hásumar í júlímánuði!! Ekkert „Jóns Gunnarsmál“ Í þessu sambandi vil ég geta þess að mál þetta hófst mun fyrr en framsóknarmenn kæra sig um að muna. Ég ræddi þessi mál fyrst í febrúarmánuði við Jón Gunnar Stefánsson þáverandi bæjarstjóra og var hann strax mjög jákvæður. Ég reyndi að ýta á eftir málinu í gegnum Jón Gunnar og veit fyrir víst að öðrum bæjarfulltrúum, þ.á.m. framsóknarmönnum var fullkunnugt um þetta mál á þeim tíma en snerust strax öndverðir. Á þeim tíma var ekkert “Jóns Gunnarsmál” til að skýla sér á bakvið og er þetta því hið versta yfirklór. Þar segir ennfremur að menn hafi fyrst viljað ljúka samningum við Jón Gunnar. Líkir hann þar með tillögu minni við samning þann sem Jón Gunnar gerði fyrir mörgum árum en er á engan hátt sambærileg. Hér á eftir fer inntak tillögu minnar orðrétt eins og sent var Bæjarráði í umræddu bréfi: Bæjarráð Grindavíkur geri við mig samning, hvers inntak yrði að Grindavíkurbær gangist í kaupábyrgð á húsi því er ég myndi kaupa ef mér ekki tækist að selja það á frjálsum markaði innan ákveðins tíma, t.d. þriggja mánaða. Kaupverð hússins verði markaðsverð á hverjum tíma. Samningur þessi taki fyrst gildi tveimur árum eftir kaupdag hússins og falli úr gildi 10 árum eftir kaupdag. Það sér hver sem verða vill að hér er ekki um að ræða svipaðan samning og Jón Gunnar gerði. Um er að ræða markaðsverð á hverjum tíma, ég setji húsið fyrst á sölu í þrjá mánuði og í raun er ég að skuldbinda mig til búsetu næstu tvö árin og samningurinn átti að fella úr gildi eftir 10 ár, semsagt 8 ára gildistími. Aldrei var haft fyrir því að ræða þetta mál við mig af hálfu framsóknarmanna. Formaður bæjarráðs neitaði að taka þetta erindi fyrir á ofannefndum bæjarráðsfundi og var það ekki tekið upp fyrr en tveimur vikum síðar og þá aðeins bókað í fundargerð að bréf hafi borist frá undirrituðum, engin efnisleg afstaða tekin í málinu og ekkert rætt við mig frekar en fyrri daginn. Þarna var málið tafið enn frekar að nauðsynjalausu. Fullsaddur af andstöðunni Að framansögðu má ljóst vera að framsóknarmenn snerust öndverðir í máli þessu þegar í febrúarmánuði 1998, ég geri síðan ekki alvöru úr húsakaupum í Hafnarfirði fyrr en í september og var þá búinn að fá mig fullsaddan af andstöðu framsóknarmanna í þessu máli. Semsagt er þarna um að ræða hálft ár sem bæjaryfirvöld höfðu til umþóttunar í máli þessu og er vart hægt að væna mig um bráðræði, ég beið í hálft ár en fékk engin svör, hvorki í febrúarmánuði né síðar. Aldrei hefur neinn af fulltrúum framsóknarmanna haft fyrir því að hafa samband við mig en eins og menn vita þá er Heilsugæslan í ágætu nábýli við Bæjarskrifstofurnar. Samskipti þau sem ég átti í máli þessu voru í upphafi við Jón Gunnar eins og að framan greinir og síðar við Ólaf Guðbjartsson sem tók jákvætt í þetta frá fyrstu byrjun. Ég vil þó geta þess að ég er ekki gefinn fyrir pólitísk afskipti og tilheyri engri stjórnmálahreyfingu og aldrei gert. Ekki er þó líklegt að framsóknargenin í mér dafni í kjölfar þessa máls. Lokatilvitnun þessa greinarhluta framsóknarmanna er torskilinn í meira lagi. Þar finnst greinarritara það slæm tilhugsun “ef þetta er það sem koma skal til að halda hátekjufólki í bænum.” Málið snýst á engan hátt um hátekjufólk bæjarins eða mínar tekjur, þær eru væntanlega mitt einkamál og er þarna um hreinan útúrsnúning að ræða. Rétt er þó að bærinn verður af útsvarsgreiðslum mínum er ég flyt í annað bæjarfélag. Má helst skilja á greinarritara að hann búist við að allir hálaunamenn bæjarins fari að senda óskir til bæjarráðs um baktryggingu varðandi húsakaup!!!!! Vilja ekkert leggja að mörkum Málið snýst aftur á móti um það að ég bý hér í bænum, leigi hús á fullu verði á frjálsum markaði. Ég þarf af ýmsum ástæðum að komast í annað húsnæði og í ekkert slíkt er að venda. Leigumarkaður hér er þröngur. Bæjaryfirvöld hafa með aðgerðarleysi sínu og andstöðu sýnt áhugaleysi sitt í verki og vilja greinilega ekkert leggja af mörkum til að stuðla að búsetu læknis hér. Mönnum finnst þó greinilega mikilvægt að hafa aðgang að lækni eftir kl 17 á daginn í neyðartilvikum en það má greinilega engu til kosta. Er mér til efs að læknar muni í framtíðinni flykkjast til bæjarins til húsakaupa. Til að þóknast bæjaryfirvöldum Ég er eins og aðrir launamenn launalaus þegar vinnudegi er lokið, bý í húsnæði sem ég kosta alfarið sjálfur eins og áður segir get væntanlega ráðstafað mér að vild utan vinnutíma. Vissulega ber bæjaryfirvöldum engin skylda til að gera neina samninga við lækni bæjarins en ef þeir vilja tryggja búsetu læknis verður að koma til móts við hann á einhvern hátt. Af hverju skyldi læknir sá er hér vinnur búsetja sig hér? Það eina sem hann uppsker er ónæði utan vinnutíma. Reyndar er ég fylgjandi því að í Grindavík búi læknir, ég er bara ekki reiðubúinn að leggja út í áhættusama og stóra einkafjárfestingu hér til að þóknast bæjaryfirvöldum. Verst er þó að bæjarbúar verða í máli þessu fyrir barðinu á skammsýni bæjaryfirvalda og er það miður. Allt frá því ég hóf störf hér hefur mér og minni fjölskyldu verið vel tekið og okkur hefur liðið vel hér þann tíma sem við höfum búið í bænum. Húsakaup án baktryggingar? Ein spurning að lokum: Ætlast framsóknarmenn í Grindavík til að læknir sá er starfar í bænum kaupi hér hús án nokkurrar baktryggingar til að vera til taks þegar þeim þóknast utan síns vinnutíma ?? Ef það er raunin þá er skammsýni þeirra meiri en mig hafði órað fyrir!!! Jörundur Kristinsson læknir, Grindavík (Millifyrirsagnir eru blaðsins)
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024