Bygg
Bygg

Mannlíf

Fimmtudagur 20. júní 2002 kl. 17:27

Jónsmessuhátíð í Bláa lóninu

Jónsmessunótt er ein mest töfrandi og ævintýralegasta nótt ársins. Í tilefni Jónsmessunnar verður Bláa lónið opið til kl 01:00 sunnudaginn 23. júní. Einnig er boðið upp á Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn sem er staðsett í næsta nágrenni við Bláa lónið.Gangan er árlegur viðburður og eykst fjöldi göngufólks með ári hverju. Lagt verður af stað kl 20:00 frá Sundlaug Grindavíkur og er hópurinn væntanlegur í Bláa lónið um kl 23:00.
KK mun fara með göngufólki á Þorbjörn og taka lagið þegar á toppinn er komið. Sætaferðir vegna göngunnar eru frá BSÍ kl 19:15 og frá Keflavík (SBK) kl 19:30. Rúturnar fara til baka kl 00:30

Jónsmessudagskráin er samvinnuverkefni Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn