Jónsmessuganga um næstu helgi
Laugardaginn 24 júní n.k verður hin árlega Jónsmessuganga í Grindavík. Gengið verður frá sundlaug Grindavíkur kl: 20:30 og haldið á fjallið Þorbjörn. Þar verður varðeldur og mun Bogomil Font spila og syngja nokkur lög ásamt Róberti Reynissyni. Þá verður göngu haldið áfram í Bláa Lónið og göngufólk nýtur þess að slaka á í lóninu, þiggja veitingar og hlusta á tónlistaratriði. Sætaferðir verða frá B.S.Í kl 19:30 og einnig frá Reykjanesbæ kl 20:00
Af vefsíðu Grindavíkurbæjar