Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar 23. júní
Þriðjudagur 12. júní 2018 kl. 00:43

Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar 23. júní

Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar verður í laugardaginn 23. júní. Gangan hefst kl. 19.00 og lagt verður af stað frá Sundlaug Grindavíkur.
 
Gengið verður uppá fjallið Þorbjörn þar sem varðeldur verður tendraður. Áætlað er að ferðin taki um tvær og hálfa klukkustund. Gunnar og Hebbi úr hljómsveitinni Skítamóral munu leika tónlist við varðeld á fjallinu. Þeir göngugarpar sem vilja slaka í Bláa Lóninu eftir gönguna eru beðnir um að ganga frá bókun tímanlega á heimasíðu Bláa Lónsins - www.bluelagoon.is 
 
Bláa Lónið er opið til 23.00 og geta gestir slakað á til 23.30. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna sjálfa og eru þátttakendur á eigin ábyrgð. Athugið að þeir sem ætla sér að slaka á í lóninu að göngu lokinni þurfa að bóka og greiða fyrir það sérstaklega.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024