Jónsmessuganga á Þorbjörn og í Bláa lónið
Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á hina árlegu Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn annað kvöld, laugardagskvöldið 26. júní. Töfrandi tónar hljómsveitarinnar Árstíða munu leika um hlustir göngufólks við varðeld á fjallinu og spilar sveitin áfram til miðnættis í Bláa Lóninu þar sem gangan endar.
Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hér er um að ræða skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Lagt verður af stað frá Sundlaug Grindavíkur kl. 20:30 og er áætlað að ferðin taki um tvær og hálfa klukkustund. Hópstjóri verður með í för en allir eru á eigin ábyrgð.
Enginn þátttökukostnaður er í gönguna og tilboð verður í Bláa Lónið, aðgangseyrir aðeins 1.400 kr. Það verður jafnframt opið til miðnættis þetta kvöld.
Kynnisferðir verða með sætaferðir til Grindavíkur frá BSÍ klukkan 19:30 og SBK frá Reykjanesbæ kl. 20:00. Sætaferðir frá Bláa Lóninu verða til Grindavíkur kl. 00:30 og Reykjanesbæjar og Reykjavíkur kl. 01:00.
Verð fyrir sætaferðir:
Reykjanesbær - Sundl. Grindavíkur - Bláa Lónið - Reykjanesbær: 1.500 kr.
BSÍ - Sundlaug Grindavíkur - Bláa Lónið - BSÍ: 3.200 kr.
Bláa Lónið - Sundlaug Grindavíkur: 500 kr.
Hljómsveitin Árstíðir mun skemmta göngugörpum. Árstíðir leikur angurværa og þjóðlagaskotna tónlist, en krafturinn er sjaldnast langt undan.
Hljóðfæraskipan bandsins er með óhefðbundnu sniði, en hún samanstendur af þremur kassagíturum, píanói, sellói og fiðlu, auk þess syngja allirmmeðlimir bandsins.
Fyrsta plata sveitarinnar kom út í júní á síðasta ári og hafa tvö lög af plötunni setið í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2.