Jónsmessuganga á Þorbjörn í kvöld – Bogomil Font skemmtir

Þegar á toppinn er komið munu þeir Sigtryggur Baldursson (Bogomil Font) og Róbert Reynisson skemmta þátttakendum yfir varðeldi og spila calypso tónlist með íslenskum textum sem vakið hefur mikla athygli undanfarið. Göngunni lýkur við Bláa lónið sem verður opið til klukkan 01.00 eftir miðnætti í tilefni göngunnar. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist og þátttakendum boðið upp á Blue Lagoon kokteil.
Enginn þátttökukostnaður er í gönguna en þátttakendur greiða aðgang í Bláa lónið.
Kynnisferðir verða með sætaferðir til Grindavíkur frá BSÍ klukkan 19.30 og SBK kl. 20.00 frá Reykjanesbæ. Sætaferðir frá Bláa Lóninu verða til Grindavíkur, Reykjanesbæjar og Reykjavíkur kl. 01:00.