Bygg
Bygg

Mannlíf

Jónsmessuganga á Þorbjörn
Miðvikudagur 22. júní 2005 kl. 18:23

Jónsmessuganga á Þorbjörn

Laugardaginn 25. júní munu Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á hina árlegu Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn. Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hér er um að ræða skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Lagt verður af stað frá sundlaug Grindavíkur kl. 20.30 og er áætlað að gangan taki rúmar tvær klukkustundir. Göngunni lýkur við Bláa Lónið - heilsulind sem opin verður til klukkan 01.00 eftir miðnætti. Eins og venja er verður boðið upp á lifandi tónlist og í ár er það Eyjólfur Kristjánsson sem mun sjá um að halda uppi skemmtilegri stemningu fyrir gesti heilsulindar.

Mögulegt er að panta nudd í heilsulindinni meðan á kvöldagskrá stendur en það má gera með því að hringja í síma 420 8832 eða senda tölvupóst á [email protected]
Enginn þátttökukostnaður verður í gönguna en þátttakendur greiða aðgang í Bláa Lónið – heilsulind.

Sætaferðir verða til Grindavíkur frá BSÍ klukkan 19.30 og frá SBK kl. 20.00. Sætaferðir frá Bláa Lóninu – heilsulind verða til Grindavíkur, Reykjanesbæjar og Reykjavíkur kl. 01:00.
Bílakjarninn
Bílakjarninn