Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Jón Sæmundur opnar sýningu í Suðsuðvestur
Fimmtudagur 29. september 2005 kl. 09:31

Jón Sæmundur opnar sýningu í Suðsuðvestur

Laugardaginn 1. október opnar myndlistarmaðurinn Jón Sæmundur innsetninguna „Ferðalok“ í sýningarrýminu Suðsuðvestur, Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ. Stendur sýningin út októbermánuð.

Jón Sæmundur er betur þekktur undir nafninu Nonni dead og eigandi Nonnabúðar í Reykjavík. Þetta er þriðja einkasýning listamannsins á árinu.

Jón  Sæmundur hélt sýninguna „Hvítir Hrafnar“ í Gallerí Sævars Karls í júní síðastliðnum og í ágústmánuði sýndi hann silkiþrykksmálverk á Næsta bar við Ingólfsstræti.

Með Ferðalokum býður Jón Sæmundur áhorfendum að skyggnast inn í hans eigin draumfarir með nýrri innsetningu í Suðsuðvestur.

Suðsuðvestur er opið á fimmtudögum og föstudögum frá 16 – 18 og um helgar frá 14 – 17.

Mynd af www.dead.is, texti af vefsíðu Reykjanesbæjar
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024