Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Jón Gnarr efstur í krakkakosningum í Suðurnesjabæ
Föstudagur 31. maí 2024 kl. 06:01

Jón Gnarr efstur í krakkakosningum í Suðurnesjabæ

Nemendur í Sandgerðisskóla tóku þátt í  krakkakosningum vegna framboðs til forseta í skólanum. Allir árgangar skólans, nemendur í 1.-10. bekk tóku þátt. Nemendaráð skólans sá um utanumhald á kosningunum og skipaði kjörstjórn. Eftir að kjörstað skólans var lokað um hádegi lokaði kjörstjórn sig af, flokkaði og taldi atkvæði með sama fyrirkomulagi og aðrar kjörstjórnir vinna.

Krakkakosningarnar eru samstarfsverkefni Umboðsmanns barna og KrakkaRÚV. Með krakkakosningum er börnum gefið tækifæri á að láta í ljós skoðanir sínar á frambjóðendum og er það í samræmi við það sem m.a. kemur fram í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sbr. lög nr. 19/2013 þar sem segir að börn eigi rétt á að láta í ljós skoðanir sínar og hafa áhrif á samfélagið, segir á heimasíðu skólans.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þetta eru sjötta sinn sem  krakkakosningar fara fram í tengslum við komandi forsetakosningar.

Niðurstöður voru eftirfarandi:

Gildir seðlar: 252
Ógildir: 5
Auðir: 2

Niðurstaðan var eftirfarandi:

1. sæti Jón Gnarr 27%
2. sæti Arnar Þór 20%
3. sæti Halla Hrund 11%
4. sæti Baldur Þórhallsson 8%
5. sæti Halla Tómasdóttir 8%
6. sæti Katrín Jakobsdóttir 6%
7. sæti Viktor Traustason 5%
8. sæti Helga Þórisdóttir 4%
9. sæti Ásdís Rán 3%
10. sæti Ástþór Magnússon 2%
11. sæti Steinun Ólína 1%
12. sæti Eiríkur Ingi 0%