Jólin komin í Kompunni
- Árlegur jólamarkaður verður opnaður í dag
Hinn árlegi jólamarkaður Kompunnar nytjamarkaðar verður opnaður í dag, fimmtudaginn 17. nóvember klukkan 13:00. Á markaðnum kennir að venju ýmissa grasa af alls kyns jólavarningi.
Starfsmenn Fjölsmiðjunnar taka á móti jóladóti allan ársins hring og þegar fer að líða að jólamarkaðnum eru vörurnar teknar fram og skoðaðar, verðmerktar og flokkaðar. Að sögn Þorvarðar Guðmundssonar, forstöðumanns Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum hefur verið mikil aðsókn að markaðnum undanfarin ár enda hægt að gera þar góð kaup. „Viðskiptavinirnir gera sér einnig grein fyrir því að með því að versla við Kompuna eru þeir í raun að láta gott af sér leiða, gera góðverk í anda jólanna, því Fjölsmiðjan sem rekur nytjamarkaðinn Kompuna er atvinnusetur ungs fólks sem kemur úr ýmsum aðstæðum á leið sinni út í lífið,“ segir hann.
Að venju verður boðið upp á kakó og piparkökur og jólaandinn verður alls ráðandi fram að jólum í Fjölsmiðjunni.