Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Jólin koma þegar kirkjuklukkurnar hringja
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 13. desember 2020 kl. 07:04

Jólin koma þegar kirkjuklukkurnar hringja

Berglind Fanney Guðlaugsdóttir, skólaliði í Gerðaskóla, setti jólaljósin upp 1. nóvember og jólatréð fer upp um það leyti þegar fyrsti jólasveinninn er væntanlegur.

– Ertu mikið jólabarn?

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Já, held það bara.“

– Fóru jólaljósin fyrr upp í ár en í fyrra?

„Já, 1. nóvember.“

– Skreytir þú heimilið mikið?

„Passlega mikið.“

– Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum?

„Þegar dætur okkur voru litlar og fóru í fyrsta skipti einar að kaupa jólagjöf handa okkur. Tilhlökkunin þeirra og spenningurinn, þegar við vorum að opna gjöfina, var svo mikill. Stundin gaf okkur mikið meira en gjöfin sjálf þótt gjöfin var vissulega falleg.“

– Hvað er ómissandi á jólum?

„Hamborgarhryggurinn með öllu tilheyrandi, Nóa konfektið og lagtertan auðvitað.“

– Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina?

„Undirbúningurinn, aðventan og fjölskyldu samveran.“

– Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst?

„Já, hér er alltaf bakað, brún lagterta, nokkrar sortir af smákökum.“

– Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar?

„Það er misjafnt en ég reyni að vera búin um miðjan nóvember.“

– Hvenær setjið þið upp jólatré?

„Við höfum alltaf sett það upp frekar snemma eða um það leyti sé fyrsti jólasveinninn er væntanlegur.“

– Eftirminnilegasta jólagjöfin?

„Þegar ég var átta ára fékk ég jólaplötuna Ég fæ jólagjöf með Kötlu Maríu. Hún var vinsælasta barnastjarna þá.“

– Hvenær eru jólin komin fyrir þér?

„Þegar kirkjuklukkurnar hringja kl. 18 og allir prúðbúnir, þá eru jólin komin.“

– Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina?

„Ne,i við höfum ekki gert það.“