Jólatrésskemmtun kvenfélagsins í Garði á föstudag
Kvenfélagið Gefn heldur sína árlegu jólatrésskemmtun föstudaginn 30. desember n.k. frá klukkan 16.00 – 18.00 í Miðgarði Gerðaskóla í Garði. Að venju verður boðið upp á fjöruga tónlist, söng og gleði og veitingar að hætti kvenfélagskvenna. Við eigum einnig von á jólasveinum í heimsókn með glaðning í poka fyrir yngstu börnin.
Aðgangur er ókeypis eins og undanfarin ár og viljum við kvenfélagskonur hvetja Garðbúa nær og fjær og gesti þeirra, til að mæta í jólaskapi með börnunum og hafa gaman saman.
Með jólakveðju og þökk fyrir veittan stuðning á liðnum árum.
Kvenfélagið Gefn í Garði