Jólatré í fyrsta skipti úr Selskógi
Að vanda mun Grindavíkurbær setja upp nokkur jólatré af mismunandi stærðum í bænum. Í fyrsta skipti verða höggvin þrjú tré í Selskógi við Þorbjarnarfell sem keypt eru af Skógræktarfélagi Grindavíkur. Jólatrén fara á eftirfarandi staði:
1. Landsbankatún 9-10 m, keypt af Skógrækt ríkisins (úr Skorradal).
2. Kirkjugarður 6-7 m, keypt af Skógrækt ríkisins (úr Skorradal).
3. Víðihlíð, 6-7 m, keypt af Skógrækt ríkisins (úr Skorradal).
4. Þórkötlustaðahverfi 3-4 m, keypt af Skógræktarfélagi Grindavíkur (úr Selskógi).
5. Gamla kirkjan 3-4 m, keypt af Skógræktarfélagi Grindavíkur (úr Selskógi).
6. Verslunarmiðstöð 3-4 m, keypt af Skógræktarfélagi Grindavíkur (úr Selskógi).