Jólatré fjarlægð í Sandgerði á mánudag
Starfsmenn áhaldahúss Sandgerðisbæjar munu fara um bæinn mánudaginn 13. janúar og fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðamörk í bænum.
Íbúar eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu og ganga vel frá trjám á aðgengilegum stöðum við lóðamörk.
Athygli er vakin á því að starfsmenn áhaldahúss fjarlægja ekki skoteldaleifar og eru íbúar hvattir til að fjarlægja sjálfir slíkar leifar sem fyrst.