Jólatónleikar Vox Felix í Hljómahöll
Miðasala er hafin á jólatónleika Vox Felix sem verða haldnir í Stapa í Hljómahöll miðvikudaginn 14. desember kl. 20:00. Aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða svo endilega tryggið ykkur miða sem fyrst.
Í tilkynningu frá Vox Felix segir:
„Það er komið að hinum árlegu jólatónleikum Vox Felix. Eru þið ekki spennt? Við erum það svo sannarlega. Við lofum auðvitað stuði og stemningu. Við munum syngja gömul og góð jólalög í bland við ný allt auðvitað undir stjórn Rafns Hlíðkvists“.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og opnar húsið kl. 19:00.