Jólatónleikar Samkórs Kópavogs í Njarðvíkurkirkju 13. desember
Samkór Kópavogs heldur tónleika í Njarðvíkurkirkju laugardaginn 13. desember kl. 16:00. Aðalefni tónleikanna er Sjá himins opnast hlið, verk fyrir blandaðan kór, orgel(píanó), þverflautu, óbó, lágfiðlu og selló eftir stjórnanda Samkórs Kópavogs Julian Michael Hewlett við texta sr. Björns Halldórssonar. Kórinn hefur ekki flutt þetta verk áður. Auk þess verða flutt jólalög bæði á íslensku og ensku.
Undirleikari á tónleikunum er Jónas Sen, auk þess leikur Guðrún Birgisdóttir á flautu, Eydís Fransdóttir á óbó, Arnþór Jónsson á selló og Ásdís Runólfsdóttir á lágfiðlu.
Undirleikari á tónleikunum er Jónas Sen, auk þess leikur Guðrún Birgisdóttir á flautu, Eydís Fransdóttir á óbó, Arnþór Jónsson á selló og Ásdís Runólfsdóttir á lágfiðlu.