Jólatónar í tónlistarskólanum
Fjöldi nemendatónleika voru haldnir í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á aðventunni og óhætt að segja að jólatónar hafi ómað á Austurgötunni í Keflavík þar sem skólinn er til húsa. Þessar myndir voru teknar á einum þessara tónleika þar sem nemendur léku á slagverk og gítara. Jólalög voru spiluð með gítarleik og trommuslætti.
--
--