Jólasýning Sossu á laugardaginn
Hið árlega jólaboð Sossu myndlistarkonu verður nk. laugardag á vinnustofu hennar að Mánagötu 1 í Keflavík. Þetta er í fimmtánda skipti sem Sossa stendur að jólasýningu. Tónlistarmennirnir Jón Rafnsson og Björn Thorodsen spila fyrir gesti kl. 18 en sýningin verður frá kl. 14 til 20.
Sossa hefur verið dugleg með málningarspaðann og mun sýna ný verk sem hún hefur verið að vinna að undanförnu hér heima og á vinnustofu sinni í Kaupmannahöfn.
„Það er alltaf gaman að fá gesti á þessa sýningu. Allir að komast í jólaskap og jólailmur í loftinu,“ sagði Sossa þegar hún stillti sér upp fyrir ljósmyndara VF.