HSS
HSS

Mannlíf

Jólasýning Bryn Ballett á sunnudag
Laugardagur 30. nóvember 2013 kl. 13:06

Jólasýning Bryn Ballett á sunnudag

Jólasýning Bryn Ballett Akademíunnar verður haldin á morgun, sunnudaginn 1. desember, í Andrews Menningarhúsinu á Ásbrú.

Það verða tvær sýningar, fyrsta sýning hefst kl. 14:00 og sama sýningin endurtekin kl. 16:30. Miðinn kostar kr 1.900. Frítt er fyrir börn 7 ára og yngri. Miðasala er hafin í afgreiðslu skólans. Einnig verður miðasala í afgreiðslu Andrews á sýningardeginum sjálfum frá kl. 13.00. Endilega tryggið ykkur miða sem fyrst.

Það er mikil tilhlökkun í gangi og mikill undirbúningur fyrir þessa sýningu. Um 200 nemendur skólans á öllum aldri munu stíga á svið og láta ljós sitt skína.

Sýningin er fjölbreytt, skemmtileg og dansflóran mikil. Klassískur ballett, nútímadans, djassdans, nútímadjass og fleira. Valin atriði úr tveimur klassískum ballettverkum við tónlist eftir Tchaikovsky "Svanavatnið" og "Hnotubrjóturinn".

Það eru allir hjartanlega velkomnir.

Vorönnin hefst mánudaginn 6. janúar, skráning er hafin fyrir nýja nemendur á www.bryn.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn