Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Jólastemmning við opnun Aðventugarðsins í Reykjanesbæ - video og myndir
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 10. desember 2022 kl. 13:55

Jólastemmning við opnun Aðventugarðsins í Reykjanesbæ - video og myndir

Fjölmenni mætti í aðventugöngu og var við opnun Aðventugarðsins í Reykjanesbæ síðasta laugardag. Kveikt var á jólatré bæjarins en það er í miðju Aðventugarðsins við skrúðgarðinn.

Í aðventugöngunni var gengið að skessuhelli frá Aðventugarðinum þar sem börnin ræddu við Fjólu tröllastelpu. Jólasveinar tóku svo forskot á sæluna og tveir þeirra fengu að kíkja til að tendra ljósin á jólatrénu eftir að Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hafði flutt nokkur jólalög. Veðurguðirnir voru í sínu besta jólaskapi og fjölmargir bæjarbúar nutu dagskrár og því sem var í boði í Aðventugarðinum. Þar var m.a. hægt að grilla sykurpúða og fara á skauta á nýju svelli Þá er boðið upp á fjölbreyttan jólavarning í jólakofum. Grýla mætti síðan í Aðventugarðinn á sunnudag og heilsaði upp á yngri sem eldri bæjarbúa. Í garðinum er einnig dagskrá á sviði en um síðustu helgi voru m.a. Ronja ræningjadóttir, Jólabjöllurnar og Kósýbandið. Aðventugarðurinn er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-18 fram að jólum en Aðventusvellið er opið fimmtudag til sunnudags.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024