HSS
HSS

Mannlíf

Jólastemmning á aðventustund í Innri Njarðvíkurkirkju
Föstudagur 16. desember 2022 kl. 14:48

Jólastemmning á aðventustund í Innri Njarðvíkurkirkju

Jólaandinn sveif yfir vötnum á öðrum sunnudegi í aðventu á aðventustund í Innri-Njarðvíkurkirkju. Sr. Brynja Þorsteinsdóttir, prestur, stýrði stundinni sem var hin hátíðlegasta.

Tónlistarfólk úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar flutti nokkur jólalög og kirkjugestir sungu jólasálma með kór kirkjunnar. Hluti kórsins, Vox Felix, söng einnig nokkur lög. Þá flutti Jenný Þórkatla Magnúsdóttir jólahugvekju.

Bílakjarninn
Bílakjarninn