Jólaspjall: Jólin hjá mér komin í nóvember
Vigdís Eir Viðarsdóttir er 20 árs Njarðvíkingur sem útskrifast úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja nú um jólin. Hún er mjög vanaföst um jólin en hún hefur gaman af því að hjálpa til í eldhúsinu og skreytir einnig alla pakka fyrir fjölskylduna. Sígildar jólamyndir koma henni í skapið eins og Christmas Vacation.
Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið?
Christmas Vacation er alveg uppáhalds annars finnst mér allar þessar sígildu jólamyndir koma mér í jólaskapið.
Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir?
Ég sendi ekki jólakort, læt mömmu um það en mér finnst hins vegar rosalega gaman að lesa þau.
Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?
Ég er rosalega vanaföst með jólin ég vil t.d. ennþá fá súkkulaðidagatal. En það sem ég geri alltaf er að aðstoða mömmu í eldhúsinu með smákökurnar og svo gerum við alltaf saman laufabrauðið. En það sem ég geri ein er að hlusta á jólatónlist á meðan ég skreyti alla jólapakkana fyrir næstum alla í fjölskyldunni það finnst mér rosalega gaman. En svo fer ég alltaf niður í bæ á Þorláksmessu og kíki í búðir. Síðan finnst mér algjört möst að kíkja á jólarúnt og skoða fallegu jólahúsin og jólaskreytingarnar í bænum. Á aðfangadag förum við öll fjölskyldan saman niður í kirkjugarða og kveikjum á kertum síðan skutlum við eitthvað af jólapökkum í leiðinni til nánasta fólkið okkar.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Mér finnst allar jólagjafir mínar eftirminnilegar en fyrir nokkrum árum fékk ég Michael Kors úr þá var það alveg efst á jólagjafalistanum mínum og ég var rosalega kát með það.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum?
Ætli það sé ekki að vakna um miðjar nætur og athuga hvort jólasveinnin var ekki búin að koma og gefa mér það sem ég var búin að skrifa til hans og biðja um.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Á aðfangadag er hamborgahryggur.
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Ég er rosalega mikið jólabarn en jólin hjá mér eru komin í nóvember, síðan laumast ég í að hlusta á eitt og eitt jólalag yfir árið.
Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin?
Jájá ég gæti alveg hugsað mér að vera erlendis einu sinni um jólin.
Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn?
Ég man það ekki en ég spurði bróðir minn og hann svaraði því þannig að ég fór í fýlu og heimtaði samt að fá ennþá í skóinn.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Mér finnst allt jólaskrautið heima rosalega fallegt en það sem stendur kannski upp úr er jólaskrautið sem amma Munda bjó til.
Hvernig verð þú jóladegi?
Á jóladag vill ég liggja heima í leti í náttfötum allan daginn og borða svo einhvern fínan mat um kvöldið.