Jólaskákmót fyrir Suðurnesjakrakka
Samsuð og Krakkaskák.is standa að jólaskákmóti í Grunnskóla Grindavíkur sunnudaginn 15. desember næstkomandi. Mótið hefst klukkan 13:00 og er opið öllum börnum á Suðurnesjum. Keppt verður með skákklukkum, tíu mínútna umhugsunartíma.
Keppt verður í aldursflokkunum 7 - 10 ára og 11 - 16 ára, stúlkna- og drebgjaflokkum. Góð verðlaun verða og happdrættisvinningar dregnir út í lokin.
Skráning fer fram á krakkaskák.is.