Jólamarkaður í Duus og jólastemmning í Reykjanesbæ
Mjög gott úrval handgerðra muna er á jólamarkaði sem haldinn er þessa helgina í Bryggjuhúsi Duus safnahúsa í Reykjanesbæ.
Á markaðnum eru handgerðir munir eftir Suðurnesjamenn, m.a. margt sem tengist jólum. Meðfylgjandi myndir voru teknar á markaðnum í dag, laugardag.
Það var skemmtileg jólastemmning í Reykjanesbæ því, í bóksafninu og síðan þegar tendrað var á jólatrénu frá vinum Reykjanesbæjar í Kristiansand í Noregi.