Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Jólamarkaður Hlöðunnar um helgina
Mánudagur 29. nóvember 2010 kl. 11:16

Jólamarkaður Hlöðunnar um helgina

Sveitamarkaður Hlöðunnar í Vogum á Vatnsleysuströnd verður haldinn í annað sinn laugardaginn 4. desember frá kl. 12:00-17:00


Laugardaginn 11. september buðu íbúar Voga og Vatnsleysustrandar grönnum sínum að njóta haustuppskerunnar með sér. Að þessu sinni verður markaðurinn með jólalegu yfirbragði. Meðal þess sem verður á boðstólum er ýmislegt matarkyns svo sem jólalegar sultur, kæfa, rúgbrauð og smákökur. Einnig verða til sölu húfur, dúkkurúmföt, jólakransar og kerti ásamt öðru handverki.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Boðið verður upp á heitt súkkulaði og jólaglögg á sanngjörnu verði.

Markaðurinn er haldinn í hlöðu sem stendur við bæinn Minni-Voga, Egilsgötu 8 í Vogum og hefst hann stundvíslega kl. 12:00 laugardaginn 4. desember.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef Hlöðunnar http://hladan.org/