Jólalukkan: Fyrsti ferðavinningurinn farinn út
Jólalukkan er komin í fullan gang og nú eftir hádegi var fyrsta ferðavinningsins vitjað hér á skrifstofu Vikurfrétta. Vinningshafinn, Kristrún Anna Skarphéðinsdóttir, hafði fengið lukkumiðann í verslun Georh Hannah, úrsmiðs. Á miðanum var ferð til einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.
Alls eru 5 þúsund vinningar í jólalukkunni í ár og þar af 17 Evrópuferðir frá Icelandair, 50” LG flatsjónvarp frá Rönning, glæsileg ferðatölva fá Tölvulistanum, Nintendo leikjatölva frá Ormsson, gasgrill frá Kasko auk fjölda annarra vinninga.
Jólalukkan stendur yfir til jóla, eða á meðan birgðir endast. Þegar verslað er fyrir 4 þúsund krónur eða meira í þáttökuverslun fær viðskiptavinurinn afhentan skafmiða og getur séð um leið hvort vinningur er á miðanum. Hægt er að vitja vinninga samstundis hjá viðkomandi verslun eða þjónustuaðila. Ef ekki er vinningur á miðanum er hægt að merkja hann með nafni og setja í sérstakan kassa í Kasko. Úr honum er svo dregnir aukavinningur á Þorláksmessukvöld, t.d. ein Evrópuferð í boði Víkurfrétta.
Mynd: Rut Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri VF afhenti Kristrúnu ferðavinningin, þann fyrsta sem fer út í Jólalukkunni í ár. VF-mynd: elg