Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Jólaljós tendruð á vinabæjartré Reykjanesbæjar
Frá tendrun jólaljósanna í Reykjanesbæ í fyrra.
Miðvikudagur 26. nóvember 2014 kl. 16:51

Jólaljós tendruð á vinabæjartré Reykjanesbæjar

- næstkomandi laugardag.

Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatrénu frá Kristiansand í Noregi á Tjarnargötutorgi í Reykjanesbæ, laugardaginn 29. nóvember kl. 16:00. Sendiherra Noregs á Íslandi, Cecilie Landsverk, afhendir jólatréð og Anna Lóa Ólafsdóttir, forseti bæjarstjórnar, flytur ávarp.
 Andri Sævar Arnarsson, nemandi úr Heiðarskóla, mun síðan tendra ljósin.


Jólasveinar mæta á svæðið og slá upp jólaballi og bregða á leik með börnunum.

 Heitt kakó verður í boði ásamt piparkökum.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024