Jólaljós tendruð á vinabæjartré Reykjanesbæjar
- næstkomandi laugardag.
Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatrénu frá Kristiansand í Noregi á Tjarnargötutorgi í Reykjanesbæ, laugardaginn 29. nóvember kl. 16:00. Sendiherra Noregs á Íslandi, Cecilie Landsverk, afhendir jólatréð og Anna Lóa Ólafsdóttir, forseti bæjarstjórnar, flytur ávarp. Andri Sævar Arnarsson, nemandi úr Heiðarskóla, mun síðan tendra ljósin.
Jólasveinar mæta á svæðið og slá upp jólaballi og bregða á leik með börnunum.
Heitt kakó verður í boði ásamt piparkökum.