Jólahús Reykjanesbæjar er að Týsvöllum 1

Ótrúlega Búðin fékk verðlaun fyrir fallegasta jólagluggann og Túngata 14 fékk verðlaun fyrir sérstakt jólahús.
Verðlaun fyrir 1. - 3. sæti voru 5, 10 og 15.000 kr. inneign á rafmagnsreikningi - ekki veitir víst af.
Í jólahúsanefnd sátu íris Jónsdóttir, Ómar Ellertsson, Jón Borgarsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Bragi Einarsson og Sirrý.
Þau hús sem hlutu viðurkenningu eru:
Fallegasti jólaglugginn
Ótrúlega Búðin Hafnargötu 15
Fallegasta heildarmynd á götu
Óðinsvellir
Fallegasta jólaskreyting á fjölbýlishúsi
Aðalgata 5
Fallegasta jólaskreyting á raðhúsi
Norðurvellir 12 - 22
Sérstakt jólahús
Túngata 14
Ljósahús Reykjanesbæjar nr. 3
Borgarvegur 15
Ljósahús Reykjanesbæjar nr. 2
Harmragarður 9
Ljósahús Reykjanesbæjar nr. 1
Týsvellir 1