Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Jólagistingin alltaf jafn vinsæl
Miðvikudagur 26. desember 2007 kl. 14:24

Jólagistingin alltaf jafn vinsæl

Jólagistingin sívinsæla á Hótel Keflavík er orðin fastur liður í jólastemmningunni í Reykjanesbæ. Í henni felst, líkt og flestir vita, að ef utanbæjarfólk verslar fyrir meira en 14.800 krónur í búðum býðst þeim gisting í eina nótt á hótelinu, án endurgjalds.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri, sagði í samtali við Víkurfréttir að stemmningin hafi verið góð sem fyrr. „Það er að myndast mikiil hefð í kringum jólagistinguna og við erum að sjá sama fólkið koma ár eftir ár. Gestirnir eru alveg sammála um að það sé mjög gott að versla hér í Reykjanesbæ, stutt að fara og hagstæð verð, en þetta skilar sér jákvætt út í bæjarandann.“

Meðal fastagesta er körfuknattleikskappinn Jón Kr. Gíslason en frá honum er þessi stutta grein:

Nótt í desember á Hótel Keflavík er orðin hluti af jólahefð okkar fjölskyldu. Við höfum komið til að versla í Reykjanesbæ síðastliðin fimm ár og nýtt okkur frábært tilboð hótelsins. Mikil breyting hefur orðið á verslun í Reykjanesbæ á síðustu árum og er gaman að sjá að hvert pláss er nú nýtt við Hafnargötuna með frambærilegum verslunum. Við finnum mikið fyrir því hversu fljót við erum að versla í Reykjanesbæ. Vegalengdirnar eru mun styttri á milli verslana og umferðin ekki í neinum líkindum við brjálæðið hér í Reykjavík og nágrenni og skemmtilegt að geta gengið á næsta veitingastað þegar kvölda tekur. Við verslum alltaf mun meira en við þurfum að skila kvittunum fyrir á hótelinu og eigum við okkar uppáhaldsverslanir sem við heimsækjum ár hvert. Framtakið skilar miklu meira til samfélagsins en ráð er fyrir gert en eitt árið keyptum við okkur meira að segja eitt stykki bíl!!
Okkur finnst þetta frábært framtak og drengirnir okkar þrír minna okkur á strax í nóvember að panta herbergi á Hótel Keflavík því þetta er notaleg stund sem fjölskyldan á saman á aðventunni. Þá nýtum við einnig tækifærið og heimsækjum fjölskylduna í gamla bænum okkar og höfum við haft orð á því að við þyrftum í raun að gista í tvær nætur til að ná að heimsækja alla þá góðu vini sem við eigum hér á svæðinu og til að klára jólainnkaupin. Kannski gerum við það næst ef vel stendur á.
Takk enn og aftur fyrir okkur og við sjáumst á næsta ári.

Jón Kr. Gíslason og fjölskylda
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024