Jólafötin: Fyrir hann
Bjarki Már fer yfir herratískuna fyrir jólin
Njarðvíkingurinn Bjarki Már Viðarsson er gjarnan flottur í tauinu. Hann er hrifinn af klassískum herrafatnaði sem stenst tímans tönn. Bjarki fór yfir það hvernig karlpeningurinn getur komist hjá því að fara í jólaköttinn þetta árið.
Jólahittingur með vinunum:
„Smart-Casual“ klæðnaður er málið hérna. Þó að veturinn sé nú ekki búinn að vera harður í ár þá erum við að spila með jarðliti í bland við þykkari efni. Rúllukraginn er frá Sand og er úr merino-ull sem að er einstaklega hlý ullartegund. Yfir rúllukragann stekk ég í mest notuðu flíkina í fataskápnum, en það er klassískur blár blazer jakki. Allir karlmenn ættu að eiga eitt eintak af bláum blazer, enda passar hann jafnt hversdags sem og aðeins í fínni kantinum. Jakkinn er frá Armani. Við þetta klæðist ég dökkbláum gallabuxum, þær eru einnig frá Sand líkt og rúllukragabolurinn. Að lokum þeyti ég rjómann með smá súkkulaðispæni og kirsuberjum, en þar á ég við aukahlutina sem oftar en ekki skapa heildar útlitið. Að lokum vel ég mér brúnmynstraðan vasaklút til að skreyta mig í stíl við rúllukragann og skóna. Klúturinn er frá Monti og skórnir frá Barker. Þumalputtaregla: Reyndu eftir fremsta megni að hafa leðrið í sama lit (belti í sama lit og skór og úraól).
Jakkafötin:
„Tvíhnepptu jakkafötin virðast koma og fara á nokkura ára fresti og eru nú komin aftur. Það gerðist rétt eftir að Ólafur Ragnar lét af embætti, en tvíhneppt jakkaföt voru hans einkennismerki. Þegar kemur að jakkafötum myndi ég segja að dökkblá föt séu fjölhæfust og mest tímalaus, þ.e. þau fara aldrei neitt og haldast alltaf í stað. Kostirnir eru þeir að þér er frjálst að nota jakkann stakan sem blazer. Þar að auki geta þau þjónað sem dökk föt þegar að svo ber undir t.d. í jarðarförum, en líka verið sumarleg og björt ef þau eiga að þjóna sem slík, þetta er allt spurning um aukahlutina sem þú notar. Þannig nýtast dökkblá jakkaföt á sem flesta vegu, fyrir mann sem að á ekki jakkaföt fyrir þá myndi ég klárlega byrja á þessum lit.
Hérna er ég að vinna með frekar klassískan stíl innblásinn af áttunda áratugnum og Wall street. Ég vel mér teinótt blá föt með aðeins meiri smáatriðum heldur en þessi venjulegu bláu jakkaföt. Svokallað „three piece“ (jakki,buxur og vesti). Jakkafötin eru frá Van-Gils. Við þetta klæðist ég skyrtu frá Stenströms, einstaklega þægilegar og vandaðar skyrtur úr tvíofnum súper-bómul. Skórnir eru ljósbrúnir svokallaðir wing-tips skór, en það heiti kemur frá mynstrinu sem er að finna á tánni á skónum, þessir eru frá Hugo Boss. Að lokum skreyti ég mig með strípuðu háskólabindi frá Ralph Lauren og vasaklút frá sama merki.
Þumalputtaregla: Haltu þig frá samlituðum pökkum með einlitum bindum og vasaklútum. Fallegt er að hafa vasaklútinn í stíl við bindið upp að vissu marki, á myndinni er ég t.a.m. að einblína á litinn í strípunum á bindinu í stíl við klútinn, en ekki allt bindið sjálft.“
Skórnir:
„Þessa dagana er ég mikið í uppháum wing-tip skóm sem henta vel sem vetrarskór og halda frosti og snjó frá. Verandi uppháir henta þeir vel til hversdagsbrúks en eru þannig í laginu að þeir henta líka beint í partýið, svokallað „smart-casual lúkk.“ Ég mæli með skóm frá Barker, en allt frá þeim er handsmíðað frá grunni og aðeins úr gæðaleðri. Þegar kemur að spariskóm vel ég mér svokallaða monk-strap skó, en það heiti kemur frá evrópskum munkum sem klæddust leðurskóm með beltum á í stað reima. Þessir sem ég er í hér eru einnig frá Barker.“
Jólagjöfin fyrir hann:
„Ég mæli með Bedale jakkanum frá Barbour en sá jakki er lífstíðareign og fjárfesting út af fyrir sig. Ég á einn slíkan og fer vart úr honum, enda ver hann mig frá veðrum og vindum og svo þar að auki er hann einnig klassískur og tímalaus í útliti. Einnig getur verið klassískt að gefa undirföt og sokka, ég mæli með micro fiber nærbuxunum frá Ralph Lauren sem eru einstaklega þægilegar. Fyrir herramanninn sem er annt um útlit sitt og framkomu getur einnig verið sniðugt að bregða aðeins út af vananum og gefa honum áskrift af GQ tímaritinu fornfræga og vinsæla.“
Aukahluturinn:
Aukahlutir geta hreinlega búið til útlitið. Rúsínan í pylsuendanum, kirsuberið á rjómanum og fleiri aðrir frasar. Skartgripir tíðkast ekki mikið hjá karlmönnum fyrir utan giftingahringi eða einstaka hálsmen. Herraúr eru þó skartgripur sem herramenn geta borið með sæmd og er alltaf fallegt.
Klæðistu jakkafötum eða blazer er alltaf fallegt að skreyta sig með vasaklút eða hálstaui, hvort sem þú velur þér hið klassíska bindi eða slaufu, þó mæli ég með því fyrrnefnda. Ef þú velur slaufu á annað borð passaðu að hún sé sjálfhnýtt. Reyndu að forðast forhnýttar slaufur, það gildir það sama um þær og smellubindi. Sé kalt í veðri er alltaf fallegt að nota trefil og leðurhanska.“