Sunnudagur 18. nóvember 2001 kl. 21:51
Jólaföndur fram á nótt hjá Nýrri Vídd í Sandgerði

Fjölmennt hefur verið hjá Nýrri Vídd í Sandgerði í allan dag og verður án efa fram á nótt. Þar hefur staðið yfir jólaföndur í allan dag og fjölmargir lagt þangað leið sína til að föndra fyrir jólin.Þegar ljósmyndara bar að garði var verið að mála forsteypt jólaskraut af ýmsum gerðum. Einnig var verið að saga út snjókarla og jólaveina í tré. Hjá Nýrri Vídd er hægt að fá úrval gjafavöru fyrir jólin og vinsælasta jólaskrautið.