Jólabasar í Kjarna
Jólamarkaður lista- og handverksfólks verður haldinn í göngugötunni í Kjarna á aðventunni. Jólamarkaðurinn verður opinn föstudaginn 5. og 12. desember þar sem boðið verður upp á fjölbreytt úrval handgerðra muna. Mikil gróska er í starfi lista- og handverksfólks á Reykjanesi og nokkuð víst að hægt verður að versla fjölbreyttar jólagjafir. Kökubasar verður á staðnum og margt fleira.